Innikisan Þoka hefur verið týnd síðan 11. febrúar og hafa engar vísbendingar borist um ferðir hennar. Þoka er lítil og nett kisa, örmerkt en ekki með ól, og hvarf eftir að hafa dottið út um glugga á heimili sínu í Grundargarði. Að sögn eiganda hennar, Hörpu Hrannar Björnsdóttur, er Þoka eingöngu vön því að vera inni og því óvön aðstæðum utandyra. „Hún er bara vön að vera inni svo ég er hrædd um að hún hafi falið sig einhversstaðar og bið fólk að kíkja í útigeymslur og á staði þar sem hún gæti hafa fundið skjól,“ segir Harpa í samtali við Húsavík.com.
Eigendur óttast að Þoka hafi leitað skjóls í lokuðum rýmum í nágrenninu og biðja íbúa í Grundargarði og nágrenni að kanna skemmur, útigeymslur, kjallara, bílskúra, undir palla og önnur rými þar sem hún gæti hafa komist inn og lokast inni.
Harpa segir að fimm börn í fjórða bekk hafi bankað upp hjá henni og boðist til að hjálpa við leitina. Hún lét þau fá mat í dall, dót og upplýsingar svo þau gætu tekið þátt í leitinni. „Elsku börn sem ég einmitt passaði á leikskólanum og voru mér mjög kær og eru enn,“ segir Harpa og bætir við að stuðningurinn hafi snert hana djúpt.
Eigendur hafa miklar áhyggjur af Þoku og vonast til að hún finnist heil á húfi sem allra fyrst. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir hennar eru beðnir um að hafa samband við Hörpu í síma 772-1803 eða Gúdda í síma 849-2872.

