Náttfari, unglingadeild Björgunarsveitarinnar Garðars, fór í gærkvöldi í skipulagða leit að Þoku, inniketti sem féll út um glugga á heimili sínu í Grundargarði fyrir um tíu dögum.
Að sögn Ingibjargar Benediktsdóttur, formanns sveitarinnar, var leitinni bæði ætlað að styðja við fjölskyldu kisunnar og jafnframt veita unglingunum raunhæfa þjálfun. „Við notum tækifærið til að þau fái að taka þátt í alvöru leit. Hilmar Freyr Birgisson sem stýrir unglingastarfinu okkar skipulagði og stýrði aðgerðum í gær,“ segir Ingibjörg.
Blaðamanni Húsavík.com var boðið að slást í hópinn með björgunarsveitinni. Leitað var á skilgreindum leitarsvæðum í nágrenni þess staðar þar sem Þoka týndist og síðan víðar um bæinn eftir fyrirfram ákveðinni áætlun. Farið var skipulega yfir skúra, undir palla og önnur skjól þar sem innikisa gæti leitað vars.

Hilmar Freyr Birgisson hjá Björgunarsveitinni Garðari segir að verkefnið hafi verið dýrmæt æfing fyrir unglingadeildina. Þau hafi undanfarið verið að læra undirstöðuatriði í leitarstörfum og mikilvægt sé að takast á við raunveruleg verkefni til að efla færni, samvinnu og ábyrgð. Notast var við hitamyndavélar og dróna í leitinni.
Stór hópur leitarfólks var að störfum í gærkvöldi og áfram verður fylgst með og íbúar hvattir til að hafa samband ef þeir verða varir við Þoku.
Útvarp Húsavík.com ræddi við Hörpu Hrönn Björnsdóttur eiganda Þoku á vettvangi í gærkvöldi:

Sjá einnig: Týnd innikisa í Grundargarði: Þoku er sárt saknað




