Kennarar víðs vegar af Norðurlandi tóku þátt í STEM menntabúðum á Húsavík

Áhersluverkefninu Saman erum við öflugri: Stuðningur og valdefling kennara í STEM greinum á Norðurlandi eystra sem leitt var af STEM Íslandi er nú lokið. En verkefnið er eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar Norðurlands eystra. Verkefnið hefur staðið yfir undanfarna mánuði en það snýst um að styðja við kennara í grunnskólum á Norðurlandi eystra og byggja upp öflugt faglegt starf í STEM greinum.

„Verkefnið byggir á raunverulegri þörf, sérstaklega þegar kemur að STEM menntun á landsbyggðunum; en oft skortir úrræði, búnað eða aðstöðu til STEM menntunar. Niðurstöður rannsókna sýna jafnframt að margir nemendur missa bæði áhuga og sjálfstraust í raungreinum um miðja grunnskólagöngu og að kennarar fá oft takmarkaða þjálfun í þessum greinum,“ segir Huld Hafliðadóttir hjá STEM Ísland.

Í verkefninu tóku þátt kennarar víðs vegar af Norðurlandi eystra. Þeir hittust reglulega á netinu, deildu reynslu, ræddu áskoranir og fengu gestafyrirlestra, fræðslu og innsýn í mismunandi leiðir í STEM kennslu. Smám saman myndaðist gott samtal og tengsl milli kennara sem annars hefðu líklega ekki hist.

Áhersluverkefninu lauk formlega með STEM menntabúðum á Húsavík á dögunum, þar sem kennararnir komu saman í eigin persónu eftir samstarfið á netinu.
Á dagskrá voru fjölbreyttar og hagnýtar vinnustofur, þar á meðal Hugsandi skólastofa í stærðfræði, skapandi vinnustofur og FabLab smiðja þar sem unnið var með hönnunarhugsun og stafræna tækni. “Ég myndi segja að vinnustofan um hugsandi skólastofu, sem Eyþór Eiríksson stærðfræðikennari í Hagaskóla stýrði, hafi staðið uppúr, en hugsandi skólastofa er ný nálgun í stærðfræðikennslu sem farin er að ryðja sér til rúms í heiminum. Hún er ólík öllu öðru sem við þekkjum í raun í stærðfræðikennslu, en nálgunin byggir á því að nemendur vinna saman að útreikningi dæma, standandi og án bóka.  Þá lögðum við líka sérstaka áherslu á svokallað “innleiðingarlab”, þar sem kennarar unnu markvisst að sinni eigin innleiðingaráætlun. Þar skipti máli að staldra við, hugsa hlutina til enda og setja niður hvernig nýjar aðferðir og hugmyndir verða útfærðar í kennslustofunni,“ segir Huld.

Húsavík.com hittti nokkra af þátttakendum menntabúðanna og það var einmitt það sem þátttakendur nefndu sjálfir sem helsta muninn á þessum menntabúðum og öðrum,  að fara ekki bara heim með höfuðið fullt af hugmyndum, heldur fullbúna áætlun um næstu skref í eigin kennslu.

Huld segir að við lok verkefnisins vonist fulltrúar STEM Íslands til að sá vettvangur sem hefur skapast nýtist áfram og að kennarar haldi áfram að deila reynslu og styðja hvert annað í starfi.