Nemendur á miðstigi í Grunnskóla Borgarfjarðar að Kleppjárnsreykjum settu á dögunum upp leikrit byggt á Þín eigin-bókum Ævars Þórs Benediktssonar, þar sem áhorfendur fengu að hafa áhrif á framvindu sögunnar. Sýningin var hluti af árshátíð skólans og vakti mikla lukku, en sjálfur höfundurinn mætti á staðinn og fylgdist með.
Í leikritinu blönduðu nemendur saman persónum og atburðum úr ólíkum bókum Ævars og stöðvuðu reglulega sýninguna til að velja hvað myndi gerast næst. „Það var algerlega frábært að sjá hvernig krakkarnir tóku efnivið bókanna og gerðu sína eigin útgáfu af honum. Persónur sem höfðu aldrei hist áður stóðu allt í einu saman á sviðinu, sem er auðvitað afskaplega gaman fyrir höfundinn sem situr úti í sal,“ sagði Borgfirðingurinn Ævar Þór í samtali við Húsavík.com, en hann gekk sjálfur í Varmalandsskóla skammt frá.
Að sögn Sæunnar Óskar Kjartansdóttur, kennara við skólann, kviknaði hugmyndin á bekkjarfundi í 6. bekk þegar nemendur voru að skipuleggja atriði fyrir árshátíðina. „Nemendur völdu sér uppáhaldsbók og kafla úr henni til að vinna með og úr varð samstarfsverkefni á öllu miðstiginu. Áhuginn var svo mikill að við buðum einnig 5. og 7. bekk að taka þátt,“ segir hún.
Undirbúningurinn var umfangsmikill og komu nemendur að öllum þáttum sýningarinnar. Sumir léku hlutverk á sviði en aðrir sáu um búninga, leikmynd, förðun og tæknimál. „Heilt yfir var þetta brjálæðislega góð samvinna og ótrúlega gaman þegar höfundurinn sjálfur mætti á sýninguna. Það skapaðist mikil spenna og gleði og við erum afar þakklát fyrir þann áhuga og hvatningu sem hann sýndi,“ bætir Sæunn við.

