„Getur skipt sköpum fyrir tækifæri barna til samvista með foreldri“

Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi, vill fjölga niðurgreiddum flugferðum fyrir börn sem þurfa að ferðast á milli landshluta til forráðamanna sinna. Leggur hann til að ferðum verði fjölgað úr sex í tólf á ári innan Loftbrúarkerfisins.

Loftbrú er niðurgreiðsla ríkisins á flugfargjöldum til og frá Reykjavík fyrir íbúa landsbyggðarinnar, þar sem ríkið greiðir 40% af allt að sex flugleggjum á ári. Þorgrímur segir að breytingin geti haft afgerandi áhrif á líf barna sem búa fjarri öðru foreldri.

„Ég hef verið í sambandi við foreldra sem búa sitt í hvorum landshlutanum og þurfa að fljúga börnum sínum á milli til að geta ræktað sitt samband við börnin sín. Og þetta eru frá 1 upp í 3 börn sem þetta fólk sem ég hef verið í sambandi við á. Og kostnaðurinn er að sliga þetta fólk,“ sagði Þorgrímur í samtali við Húsavík.com.

Hann segir dæmi um að börn hafi orðið af samvistum við foreldri vegna þess að kostnaður við flug hafi verið of hár. „Þá er þetta farið að bitna á börnunum okkar,“ segir Þorgrímur.

Hann telur framkvæmd breytingarinnar ekki flókna þar sem kerfið sé þegar til staðar, þó það sé ekki fullkomið.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur nýting á Loftbrú aukist um 11% frá árinu 2022 en kostnaður á sama tíma hækkað um 39%. Þingmaðurinn segir þó að aukinn stuðningur við barnafjölskyldur sé vel réttlætanlegur.

„Þetta er lítið fé fyrir okkur sem samfélag en getur skipt sköpum fyrir tækifæri barna til samvista með foreldri,“ sagði Þorgrímur Sigmundsson í samtali við Húsavík.com.