„Við erum afar stolt af Grenjaðarstað og Sauðaneshúsi í nýrri þáttaröð RÚV“

Menningarmiðstöð Þingeyinga tekur þátt í framleiðslu RÚV á nýrri sjónvarpsþáttaröð sem fjallar um valdar byggingar úr Húsasafni Þjóðminjasafnsins. Það er hinn ástsæli dagskrárgerðarmaður Egill Helgason sem stýrir þáttunum og annast framleiðslu ásamt Jón Víði Haukssyni kvikmyndatökumanni og eru þættirnir unnir af RÚV í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands Egill Helgason …

50 ár frá Kópaskersskjálftanum: „Fannst þetta aldrei ætla að enda“

Þann 13. janúar 1976 klukkan 13:30 reið einn harðasti jarðskjálfti sem orðið hefur í byggð á Norðurlandi yfir Kópasker. Skjálftinn mældist 6,5 á richterkvarða og átti upptök sín um 12 kílómetra suðvestur af þorpinu. Á örfáum sekúndum breyttist daglegt líf íbúanna. Þótt manntjón yrði ekki í skjálftanum, urðu afleiðingarnar …

Viðburðadagatal Markþings: „Sérstaklega mikilvægt nú þegar Skráin er hætt að koma út“

Á nýrri vefsíðu Markþings, samtaka aðila í verslun og ferðaþjónustu er að finna viðburðadagatal þar sem einstaklingar, félög og fyrirtæki geta skráð viðburði sína. Þar eru nú auglýstir fjölmargir viðburðir sem eru á döfinni á Húasvík næstu vikur, þorrablót, menningarspjall, fundur hjá Leikfélagi Húsavíkur o.fl. „Þetta fer fínt af …

Leituðu öruggra verkefna fyrir sitt fólk eftir vanhugsaðar aðgerðir gegn skemmtiferðaskipum

Ferðaþjónustufyrirtækið Fjallasýn hefur tekið við rekstri landsbyggðarstrætó á norður- og norðausturlandi. Tók fyrirtækið formlega við verkefninu um áramót eftir útboð, þar sem Fjallasýn átti lægsta tilboðið. Framkvæmdastjóri segir fyrirtækið hafa leitað öruggra verkefna fyrir sitt starfsfólk vegna fyrirsjáanlegs samdráttar í komum skemmtiferðaskipa næstu ár eftir miklar og tíðar breytingar …

Samfélagsumræða og minningargreinar á Húsavík.com

Fréttavefurinn Húsavík.com tekur við aðsendum greinum og efni sem birt er undir nafni í samræmi við ritstjórnarstefnu miðilsins. Á vefnum birtum við greinar um málefni samfélagsins og önnur hugðarefni fólks, auk minningargreina. Aðsent efni má senda á netfangið greinar@husavik.com en ábendingar um fréttir á netfangið frettir@husavik.com. Þessa vikuna eru …