„Þetta er öflugur hópur og mörg komin út á vinnumarkaðinn nú þegar“

Löng hefð er fyrir því að Framsýn taki á móti skólahópum til fræðslu um atvinnulíf og réttindi ungs fólks, en í síðustu viku tóku þeir Aðalsteinn J. Halldórsson og Aðalsteinn Á. Baldursson, Kúti, á móti öflugum hópi til fræðslu. „Við fengum útskriftarnema Borgarhólsskóla í heimsókn fyrir helgi. Það er …

Nemendur Borgarhólsskóla heimsóttu Þeistareykjarstöð

Á vef Borgarhólsskóla er sagt frá skemmtilegri heimsókn nemenda í 7. bekk í Þeistareykjarstöð nú í vikunni. „Viðfangsefni nemenda í náttúrugreinum um þessar mundir eru orka, orkugjafar og auðlindir. En Þeistareykjastöð var fyrsta jarðvarmavirkjunin sem Landsvirkjun reisti frá grunni. Heimsóknin er liður í verkefni Landsvirkjunar sem kallast Nám í …

„Við vonumst til að fá sem flest úr þessum stóra árgangi til okkar í FSH“

Foreldrum nemenda í 10. bekk í Borgarhólsskóla var boðið á kynningu á starfsemi Framhaldsskólans á Húsavík á opnum degi sem haldinn var í skólanum í gær. „Við vorum að kynna starfsemi skólans, fara yfir námsframboð, félagslíf og þjónustu skólans,“ segir Arna Ýr Arnarsdóttir, áfanga- og fjármálastjóri FSH. Alls munu …

Stærsta framkvæmd sveitarfélagsins í áratugi

Norðurþing vinnur nú að uppbyggingu húsnæðis undir frístund og félagsmiðstöð á Húsavík. Um er að ræða stærstu einstöku framkvæmd sveitarfélagsins í tugi ára en heildarkostnaður er áætlaður um 750-800 milljónir króna. Húsið er reist sem viðbygging við Borgarhólsskóla, alls um 900 fermetrar á tveimur hæðum. Trésmiðjan Rein er aðalverktaki …

Grænuvellir: Víðtæk áhrif á leikskólastarf en tvær leiðir til skoðunar

Talsverðar breytingar hafa orðið á starfsemi leikskólans Grænuvalla á Húsavík frá því í nóvember, eftir að mygla greindist í starfsmannahúsi skólans við Iðavelli 8. Í kjölfarið var starfsmannaaðstaða flutt tímabundið inn í sal leikskólans, sem hefur haft veruleg áhrif á hefðbundið starf, sérstaklega á viðburði og sameiginlegt nám í …