Tilboð Icelandair í flug til Ísafjarðar langt yfir áætlun

Tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Ísafjarðar er hátt í þrefalt hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Icelandair var eina flugfélagið sem lagði fram tilboð í útboði á leiðinni. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 1,3 milljarða króna en tilboð Icelandair nam 3,5 milljörðum króna. Vegagerðin bauð út rekstur áætlunarflugsins …

Ný brú yfir Skjálfandafljót og grjótgarður á Húsavík á samgönguáætlun

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, kynnti í dag samgönguáætlun til ársins 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun. Þar kom fram að ný brú yfir Skjálfandafljót verði reist á tímabilinu 2026–2030 og að áformin séu að fullu fjármögnuð. Vegagerðin hefur áður áætlað að ný brú og nýr vegarkafli verði tilbúin haustið 2028. Aðaltenging …