Húsavík.com leitar að íþróttafréttaritara

Fréttavefurinn Húsavík.com leitar nú að einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttum til að ganga til liðs við ritstjórn miðilsins. Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum íþróttafréttaritara sem vill taka þátt í að byggja upp öflugan samfélagsfjölmiðil með því að fjalla um það mikla og fjölbreytta íþróttastarf sem fer fram á Húsavík og í nærsveitum.

Allar frekari upplýsingar veitir Örlygur Hnefill ritstjóri í síma 8487600 en einnig má senda tölvupóst á orly@husavik.com