20 ára aldursmunur á framherjum Völsungs

Það var 20 ára aldursmunur í framlínunni hjá Völsungum í dag þegar liðið tók á móti ÍA í Lengjubikarnum hér á Húsavík. Þar skipuðu saman sóknina frændurnir Elfar Árni Aðalsteinsson, 35 ára, og systursonur hans Sæþór Orri Skarphéðinsson, aðeins 15 ára.

Leikurinn endaði með 5–1 sigri ÍA, en þrátt fyrir úrslitin var dagurinn sérstakur fyrir hinn unga Sæþór Orra. Þetta var fyrsti leikur hans í byrjunarliði meistaraflokks Völsungs og því sannarlega stór stund fyrir hinn efnilega sóknarmann, sem á framtíðina fyrir sér í boltanum.

Elfar Árni sneri aftur heim í Völsung sumarið 2025 eftir að hafa leikið með Breiðablik og KA á ferlinum. Knattspyrnuættin er sterk, því bróðir Elfars og frændi Sæþórs, Baldur Aðalsteinsson, átti á sínum tíma farsælan feril með Völsungi, ÍA, Val og Víkingi og lék átta A-landsleiki fyrir íslenska landsliðið.

Það er ekki á hverjum degi sem frændur með tveggja áratuga aldursmun leiða saman sókn meistaraflokks, en á Húsavík í dag varð sú saga skrifuð. Það var stoltur faðir og afi, Aðalsteinn Árni Baldursson, sem sendi Húsavík.com meðfylgjandi mynd.