Bætt aðgengi og nýjar skiltamerkingar við Gullfiskatjörn

Nýjar skiltamerkingar hafa verið settar upp við gatnamót Þverholts og Garðarsbrautar auk nýrra skilta við Yltjörn sunnan við Húsavík, sem í daglegu tali er kölluð Gullfiskatjörnin. Þessar framkvæmdir ásamt fleiri jarðvegsframkvæmdum við tjörnina er hluti af styrkverkefni sem sveitarfélagið fékk úthlutað úr Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða árið 2023. Styrkurinn hljóðaði upp á rúma 21 milljón og var nýttur til að bæta aðgengi allra á svæðinu auk lagfæringar á gönguleið milli Húsavíkur og Yltjarnar.

Tjörnin er ein af fjórum sem mynduðust á árunum 2000 og 2001 í tengslum við raforkuframleiðslu í lítilli virkjun í Hrísmóum, þegar volgu og heitu vatni var veitt í dalverpið þar sem Yltjörn, eða Gullfiskatjörnin, er nú.

Nánar er fjallað um málið á vef Norðurþings í dag.