„Gatanöf er ein af vannýttum perlum í ferðaþjónustu á svæðinu“

Skiltamerkingar að Yltjörn, Gullfiskatjörninni sunnan Húsavíkur, er ekki eina styrkverkefnið sem Norðurþing hefur fengið úthlutað frá Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða á síðustu árum. Árið 2024 fékk sveitarfélagið úthlutað 7 milljónum króna til uppbyggingar á nýju bílastæði og gönguleið um Bakkahöfða. Styrkurinn var einnig nýttur til að auka upplýsingagjöf á svæðinu og merkja betur gönguleið að Gatanöf og um Bakkahöfða. Auk styrks frá Framkvæmdasjóðum fékk sveitarfélagið einnig eina og hálfa milljón í styrk úr styrkvegasjóði Vegagerðarinnar til að bæta aðkomu frá þjóðvegi 85 að bílastæðinu.

„Gatanöf er ein af vannýttum perlum í ferðaþjónustu á svæðinu og því skipta þessar framkvæmdir miklu máli,“ segir Heiðar Hrafn Halldórsson stjórnarmaður í Markþingi, samtökum aðila í ferðaþjónustu og verslun á Húsavík og í nærsveitum. „Við í ferðaþjónustunni erum búin að tala fyrir þessu lengi, enda er þarna stórkostleg náttúruperla í okkar bakgarði.“

Það ferðafólk sem gert hefur sér ferð að Gatanöf undanfarin ár hefur verið duglegt að setja myndir og myndbönd á svæðinu á samfélagsmiðla og hefur kletturinn stundum fengið nafnið The Elephant Rock í skrifum ferðafólks, enda minnir hann á fíl með ranann í vatninu frá ákveðnu sjónarhorni, en einnig má finna slíkan klett, þó ekki með opnun, í Vestmannaeyjum.

Fjallað er um framvkæmdirnar á vef Norðurþings í dag. „Gönguleiðin um Bakkahöfða mjög áhugaverð og tilvalin fyrir þá sem vilja taka sér um það 3 km gönguhring frá nýju bílastæði við Bakkahöfða. Við hvetjum því öll áhugasöm til að fara í göngutúr við tækifæri og njóta þeirrar náttúrufegurðar sem svæðið hefur upp á að bjóða,“ segir á vef Norðurþings.

Ljósmynd: Gaukur Hjartarson/Markþing