Hallgrímur Mar Steingrímsson í landsliðshóp Íslands gegn Mexíkó

Húsvíkingurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir vináttulandsleik gegn Mexíkó sem fram fer í Querétaro þann 26. febrúar. Þetta staðfesti Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari í samtali við Fótbolti.net í gær.

Hallgrímur Mar, sem er 35 ára gamall, hefur verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar um árabil. Þrátt fyrir langan og farsælan feril á hann enn eftir að leika sinn fyrsta A-landsleik, en gæti nú fengið tækifæri til þess í Mexíkó. Árið 2021 varð hann markahæsti leikmaður í sögu knattspyrnudeildar KA og í lok síðasta árs var hann valinn í úrvalsliði ársins hjá Fótbolti.net, en í umsögn sagði: „Hallgrímur er töframaður sem gerir Bestu deildina skemmtilegri.“

Á síðasta tímabili skoraði Hallgrímur 13 mörk og lagði upp fimm í Bestu deildinni og var valinn besti leikmaður KA á lokahófi félagsins. Hann hefur ítrekað verið meðal þeirra leikmanna sem þykja skemmtilegastir og áhrifamestir í deildinni síðasta áratuginn.

Í þættinum Besta sætið á Sýn Sport sagði Atli Viðar Björnsson í lok árs 2024 að Hallgrímur væri „sannarlega einn af bestu og skemmtilegustu leikmönnum sem við höfum séð í deildinni síðustu tíu ár eða svo“.

Ísland og Mexíkó hafa fimm sinnum áður mæst í vináttulandsleikjum. Ísland hefur enn ekki náð sigri í þeim viðureignum, en liðin hafa tvisvar gert jafntefli. Mexíkó er sem stendur í 16. sæti heimslistans, en Ísland í 74. sæti.

Húsavík.com óskar Hallgrími til hamingju með þessa viðurkenningu.