Líkur á nýju framboði í Norðurþingi í vor

Húsavík.com hefur undanfarnar vikur fylgst grannt með framvindu framboðsmála fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ljóst er að hreyfing er komin á flest framboð í Norðurþingi, en heimildamenn  innan nokkurra framboða staðfesta að erfiðara sé að fá fólk á lista en oft áður.

Sjálfstæðisfólk í Norðurþingi fundaði í desember og kaus uppstillingarnefnd sem hóf störf í byrjun árs. Hafrún Olgeirsdóttir og Kristinn Jóhann Lund, sem sátu fyrir flokkinn í sveitarstjórn á kjörtímabilinu, hafa bæði tilkynnt að þau hyggist ekki gefa kost á sér áfram. Kristinn segist ekki útiloka að koma aftur í stjórnmálin en ætli að taka hlé að svo stöddu. Helena Eydís Ingólfsdóttir hefur hins vegar lýst yfir áhuga á að leiða listann. Í upphafi árs ákváðu Samfylkingin og Framsóknarflokkur einnig að hefja vinnu við uppstillingarferli og Miðflokkurinn er sömuleiðis farinn af stað með undirbúning framboðs.

Nýtt framboð til vinstri í skoðun

Óvissa hefur hins vegar ríkt um stöðu Vinstri grænna. Nú virðist sem ekki verði boðið fram undir merkjum flokksins heldur sé stefnt að nýju og breiðara framboði á vinstri vængnum. Aldey Unnar Traustadóttir, sem var oddviti VG í síðustu kosningum, staðfestir að slíkar hugmyndir séu til skoðunar: „Ég hef áhuga á að hér verði boðið fram vinstri framboð sem ég er tilbúin að leiða. Þótt ég sé í VG þarf það ekki að vera þannig fyrir öll sem taka þátt. Mér finnst vanta skýran málsvara á vinstri vængnum. Eins og sést til dæmis í umræðunni um vindmyllur er enginn annar sem leggur jafn mikla áherslu á náttúruvernd, sem er að mínu mati mjög mikilvægt mál í svona víðfeðmu sveitarfélagi. Þá finnst mér einnig vanta sterkan málsvara fyrir minnihlutahópa, til dæmis erlent fólk,“ segir Aldey.

Vinstri Græn fengu tvo fulltrúa kjörna í síðustu kosningum, en auk Aldeyjar situr Ingibjörg Benediktsdóttir í sveitarstjórn fyrir VG. Aldey segir málið enn á umræðustigi. „Ég er að skoða þetta áfram og hef áhuga á að halda áfram störfum í sveitarstjórn, en það þarf fleiri vinstrisinnaða einstaklinga með mér. Ingibjörg hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram og því þurfum við fljótlega að boða til fundar og ræða næstu skref.“