Ragnheiður Geirsdóttir var kjörin nýr forseti Landssambands ungmennafélaga á sambandsþingi um síðastliðna helgi. Landssamband ungmennafélaga eru regnhlífarsamtök fyrir félagasamtök ungs fólks um allt Ísland og eru aðildarfélög 44 talsins, þar á meðal stúdentaráð HÍ, Samband íslenskra framhaldsskólanema, SAMFÉS, JCI á Íslandi og ungliðahreyfingar ýmissa stjórnmálaflokka. Í tilkynningu frá samtökunum segir að Ragnheiður taki við af Sylvíu Martinsdóttur sem hefur verið forseti frá 2024. Ragnheiður var fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands á þinginu og segist full tilhlökkunar fyrir árinu.
„Fókusinn núna er á #égkýs verkefnið og skuggakosningarnar sem við höfum staðið fyrir á framhaldsskólastiginu í samstarfi við Samband íslenskra framhaldsskólanema. Þetta hefur reynst einstakt tækifæri til þess auka lýðræðisþátttöku og valdefla ungt fólk,“ segir Ragnheiður.

Auk hennar voru kjörin í stjórn þau Lilja Hrönn Önnudóttir Gísladóttir, Ari Borg Helgason, Eiður Welding, Katla Ólafsdóttir, Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Einar Arnalds og Karítas Ríkharðsdóttir.

