Rúnar Traustason, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og stöðvarstjóri Póstsins á Húsavík, mun leiða M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í maí. Bakland flokksins fundaði á Húsavík í gær og í samtali við Húsavík.com segir Rúnar að næstu sæti listans verði kynnt á komandi dögum.
Áki Hauksson, núverandi bæjarfulltrúi M-Listans, tilkynnti fyrr í mánuðinum að hann hygðist ekki sækjast eftir áframhaldandi setu í sveitarstjórn Norðurþings.
„Sælir vinir mínir, nú hef [ég] verið í sveitarstjórn í nærri fjögur ár, þar áður í nefndum og ráðum sveitarfélagsins í nokkur ár. Ég hef ákveðið á þessm tímamótum að stíga hliðar á hinu pólitíska borði Norðurþings af persónulegum ástæðum.
Ég mun því ekki bjóða mig fram aftur til sveitarstjórnar í vor, þessi tími er búinn að vera ágætur þó að nokkur ágjöf hafi verið á Norðurþing á kjörtímabilinu. Veit þó að Norðurþing og íbúar þess hafa ávalt komið niður á lappirnar og gera það áfram,“ segir Áki í tilkynningu á Facebook.


