Sex hætta í sveitarstjórn Norðurþings og óvissa með aðra fulltrúa

Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar í sveitarstjórn Norðurþing að loknum kosningum í vor. Sex af níu sitjandi fulltrúum hafa þegar gefið út að þeir hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri og staða þeirra þriggja oddvita sem áfram vilja sitja er enn að einhverju leyti óljós. Uppstillingarferli er í gangi hjá tveimur af þeim framboðum en óvíst með það þriðja.

Allir núverandi fulltrúar Framsóknarflokksins hverfa á braut. Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar, tilkynnti um helgina að hann hyggðist segja skilið við stjórnmálin í vor og verði ekki í efstu sætum listans. Áður höfðu flokkssystkini hans Soffía Gísladóttir og Eiður Pétursson tilkynnt að þau myndu bæði hætta í vor. Það er því ljóst að algjör endurnýjun verður í röðum framsóknarfólks í Norðurþingi.

Hjá Sjálfstæðisflokknum mun Kristinn Jóhann Lund ekki gefa kost á sér áfram, en hann kom inn þegar Hafrún Olgeirsdóttir fór í fæðingarorlof, en hún hafði síðan tilkynnt að hún myndi ekki snúa til baka. Helena Eydís Ingólfsdóttir oddviti sjálfstæðisfólks í sveitarstjórn hefur lýst yfir vilja til að halda áfram, en aðeins sem oddviti. Uppstillingarnefnd er að störfum. Samkvæmt heimildum Húsavík.com innan flokksins hefur reynst erfitt að fá frambjóðendur af austursvæði sveitarfélagsins og sama á raunar við um fleiri framboð.

Hjá Vinstri grænum er staðan enn mjög óljós. Aldey Unnar Traustadóttir oddviti flokksins hefur áhuga á að halda áfram, en óvíst er hvort flokkurinn bjóði fram í núverandi mynd. Þá eru hafnar þreifingar um nýtt og breiðara framboð á vinstri vængnum. Ingibjörg Benediktsdóttir sem skipaði 2. sæti hjá VG í síðustu kosningum staðfesti í samtali við Húsavík.com í dag að hún hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri.

Hjá Miðflokknum hefur Áki Hauksson núverandi oddviti M-listans þegar tilkynnt að hann hætti. Nýr oddviti M-lista Samfélagsins, Rúnar Traustason, hefur verið kynntur og samkvæmt öruggum heimildum Húsavík.com verður Ágúst Sigurður Óskarsson í öðru sæti listans, en tilkynningar er að vænta á morgun.

Benóný Valur Jakobsson, oddviti Samfylkingarinnar, staðfest í samtali við Húsavík.com að hann gæfi kost á sér til að leiða lista Samfylkingarfólks áfram, en einnig hafa heyrst nefnd nöfn þeirra Ísaks Más Aðalsteinssonar og Kjartans Páll Þórarinssonar sem mögulegra oddvita Samfylkingarinnar.  Uppstillingarnefnd er þessa dagana að störfum og er niðurstöðu hennar að vænta um mánaðamót.

Það er því ljóst að mikil endurnýjun verður í sveitarstjórn, á tíma þegar mikið gefur á bátinn hjá sveitarfélaginu. Húsavík.com mun flytja fréttir og nýjustu tíðindi af framboðsmálum, auk þess að verða með framboðsfund í beinni útsendingu í aðdraganda kosninga og kosningavöku í beinni á kjördag og inn í nóttina.