Stytta opnunartíma í Sundlaug Húsavíkur um 8 tíma á viku

Norðurþing hyggst stytta opnunartíma Sundlaugar Húsavíkur um átta klukkustundir á viku um mánaðarmót. Verður opnað síðar á morgnana á virkum dögum, klukkan 7.15 í stað 6.45, og lokað fyrr á kvöldin, klukkan 20.15 í stað 21.00. Á föstudögum mun laugin loka klukkan 17.45 í stað 19.00. Um helgar verður opnunartími jafnframt styttur um 45 mínútur í lok dags.

„Við þurftum að móta opnunartíma eftir því fjármagni sem við höfum út að spila,“ segir Stefán Jón Sigurgeirsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Norðurþings. Hann gerir ráð fyrir að breytingarnar verði auglýstar formlega fyrir lok vikunnar.

Kristinn Jóhann Lund, formaður fjölskylduráðs Norðurþings, segir að nauðsynlegt hafi verið að hagræða í rekstri. „Það var reynt að horfa til þess hvaða tímar væru minnst nýttir. Tekjusamdráttur hjá sveitarfélaginu er þannig að það þurfti að horfa í hverja einustu krónu og því miður er þetta raunin. Við gerum okkur grein fyrir að þetta veldur óþægindum fyrir gesti og starfsfólk, en vonandi verður hægt að endurskoða þetta þegar fer að birta til,“ segir hann.

Ákvörðunin hefur þegar vakið viðbrögð eftir að starfólk sundlaugarinnar setti upp litla tilkynningu í miðasölu í gær. Birgitta Bjarney Svavarsdóttir, verslunarmaður á Húsavík, hefur sent sveitarstjórn opið bréf þar sem hún mótmælir skerðingunni. Hún bendir á að sundlaugin sé grunnþjónusta og mikilvægur innviður sem styðji við lýðheilsu, forvarnir og félagslegt hlutverk í samfélaginu.

Í bréfi sínu vísar hún til þess að árið 2018 hafi Norðurþing gerst heilsueflandi samfélag og spyr hvort með þessari ákvörðun sé verið að hverfa frá þeirri stefnu. Þá krefst hún skýrs og opinbers rökstuðnings fyrir breytingunum, þar á meðal hvaða kostnaðargreining og mat hafi legið að baki, og að málið verði tekið til formlegrar umræðu á næsta fundi sveitarstjórnar. Hún óskar jafnframt eftir skriflegu svari innan 14 daga um hvort og hvernig standi til að endurskoða opnunartímann.

Ljósmynd: Markþing