Innviðaráðherra hefur úthlutað samtals 170 milljónum króna til fjórtán verkefna um allt land sem miða að því að efla viðkvæmar byggðir, styrkja innviði og styðja við atvinnuþróun. Þar á meðal hlutu tvö verkefni á Raufarhöfn veglega styrki, samtals 18 milljónir króna.
Lýsistankarnir fengu 8 milljóna króna styrk sem nýttur verður til að ljúka viðgerðum á þaki og koma upp merkingum. Með þessu er stigið mikilvægt skref í átt að því að gera mannvirkið öruggt og tilbúið til nýtingar í menningar-, lista- og ferðaþjónustu.
Þá fékk Ráðhúsið á Raufarhöfn, sem er í uppbyggingu sem atvinnu- og samfélagssetur, 10 milljóna króna styrk. Fjármagnið verður nýtt til að ljúka endurbótum og skapa aðstöðu fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi með það að markmiði að laða að frumkvöðla og nemendur, efla menntun og styrkja samfélagið með samveru- og vinnurýmum.
Katrín Sigurþjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings, sem er meðal þeirra sem nýta sér aðstöðuna í Ráðhúsinu reglulega, undirritaði samning um styrkina í vikunni.
Ljósmynd: Rafnar Orri Gunnarsson fyrir Húsavík.com

