Blaklið blakdeildar Völsungs lauk keppni á leiktíðinni í gær þegar liðið tapaði 3-1 gegn KA á Akureyri. Með tapinu er ljóst að draumurinn um sæti í úrslitum er úti að þessu sinni.
Þrátt fyrir vonbrigðin í gær geta Völsungsstúlkur verið gríðarlega stoltar af árangri vetrarins, en þær hafa boðið upp á skemmtilega leiktíð þar sem liðið hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir baráttuþrek, samheldni og góða spilamennsku.
Stemningin í kringum liðið hefur verið frábær, ekki síst hér á Húsavík þar sem liðið jafnaði einvígið um síðustu helgi með glæsilegum 3–1 sigri á KA. Fjölmörg fyrirtæki í bænum buðu þá á leikinn og stuðningurinn var mikill í höllinni.
Í samtali við Húsavík.com í desember síðastliðnum sagði Taylor Nicole Horsfall, þjálfari liðsins, að góður gangur liðsins væri góðum anda og liðsheild að þakka, en leikgleðin hefur verið ríkjandi hjá liðinu.

