Götur á Húsavík eru að koma illa undan snjó og víða í bænum má finna stórar og djúpar holur. Vegna bleytu og snjóalaga er ekki unnt að ráðast í varanlegar viðgerðir að svo stöddu. „Tíðarfar og viðhaldsleysi í gegnum tíðina eru helstu ástæðurnar fyrir því af hverju götur eru að koma svo illa undan vetri nú. Þetta er allt að verða komið á tíma,” segir Trausti Aðalsteinsson bæjarverkstjóri Norðurþings á Húsavík.
Hann segir að starfsmenn þjónustumiðstöðvar muni gera sitt besta til að bregðast við með bráðabirgðaaðgerðum, svo sem að fylla í holur með möl og setja upp aðvörunarskilti þar sem þörf krefur.
Trausti hvetur ökumenn til að sýna sérstaka aðgát og tillitssemi í umferðinni. Ástandið er verst á helstu umferðargötum og við gatnamót þeirra, en unnið verður að varanlegum úrbótum um leið og veður og aðstæður leyfa.

