Patrick De Wilde er hættur sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Völsungi, en tilkynnt var um ráðningu hans í desember síðastliðnum.
Félagið staðfesti tíðindin á Facebook síðu Græna hersins síðdegis í gær, en þar kemur fram að aðilar hafi komist að samkomulagi um starfslok. „Knattspyrnudeild Völsungs og Patrick De Wilde þjálfari meistaraflokks karla hafa samið um starfslok,“ segir í tilkynningu.
Meðan unnið er að þjálfaramálum munu þeir Elfar Árni Aðalsteinsson og Bjarki Baldvinsson stýra liðinu, en frekari fréttir af þjálfaramálum verða kynntar síðar.
De Wilde var kynntur sem þjálfari Völsungs þann 18. desember á síðasta ári og voru talsverðar væntingar bundnar við hann. Ferill hans er langur og hann hafði áður þjálfað víða um heim, meðal annars með landslið í Afríku og síðast kvennalandsliði Nepal. Undirbúningstímabilið hefur hins vegar reynst Völsungi erfitt.

