Rocky í Reykjavík: Hver að verða síðastur að tryggja sér miða í Þjóðleikhúsið

Í vikunni hófst sala á miðum á sýningu Leikfélags Húsavíkur á Rocky Horror í Þjóðleikhúsinu en samkvæmt heimildum Húsavík.com hefur salan gengið svo hratt að nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á sýninguna.

Húsavík.com ræddi við Eyvind Karlsson leikstjóra, sem er nú annað árið í röð að fara með áhugaverðustu áhugaleiksýningu ársins á fjalir Þjóðleikhússins.

„Það er auðvitað ótrúleg tilfinning að fara annað árið í röð með áhugasýningu á stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu, og hálf óraunverulegt,“ segir Eyvindur. „Ég er auðvitað rosalega montinn og þakklátur fyrir að fá svona gott samstarfsfólk.“

Einar Óli Ólafsson og Bergdís Björk Brandr Jóhannsdóttir í hlutverkum Brad og Janet. Ljósmynd: ÖHÖ

Sjá einnig: Leikfélag Húsavíkur fer með Rocky Horror í Þjóðleikhúsið

Framundan eru annasamar vikur hjá Leikfélagi Húsavíkur þar sem aðlaga þarf sýninguna að stærra sviði og nýjum aðstæðum í Þjóðleikúsinu.

„Nú hefst heilmikil vinna við að finna út úr því hverju þarf að breyta og hagræða til að flytja sýninguna á stærra svið, koma tæknimálum í farveg og undirbúa eins og hægt er fyrir komu Húsvíkinga,“ segir Eyvindur.

„Svo verður mikill hasar í sýningarvikunni að koma öllu heim og saman, í samvinnu við starfsfólk Þjóðleikhússins. Semsagt, mjög spennandi tímar framundan.“

Leikstjórinn Eyvindur Karlsson: „Ótrúleg tilfinning að fara annað árið í röð með áhugasýningu á stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu“

Leikhúsrýni Húsavík.com: Rocky Horror: Sjónrænt stórvirki hjá Leikfélagi Húsavíkur

Sunnudagsviðtalið: Helga Sveinbjörnsdóttir: „Ég ólst upp við að leikhúsið væri draumastaður þar sem töfrar gerðust“