Hvalaskoðunarfyrirtækið Norðursigling á Húsavík tapaði 100 milljónum króna á árinu 2024 eftir að hafa skilað 64 milljóna króna hagnaði árið áður. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins, sem Viðskiptablaðið fjallar um í dag. Tekjur félagsins námu 828 milljónum króna á árinu 2024 og drógust saman um 139 milljónir frá árinu 2023. Í skýrslu stjórnar segir að reksturinn hafi verið þungur vegna utanaðkomandi aðstæðna og að tekjur hafi orðið talsvert lægri en gert var ráð fyrir í áætlunum, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á rekstur og efnahag. Á sama tíma jukust bókfærðar eignir félagsins um rúmar 200 milljónir króna milli ára.
Þá segir í skýrslunni að félagið hafi á árinu 2025 unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu, meðal annars með sölu eigna og niðurgreiðslu skammtímaskulda. Jafnframt hafi verið gripið til markvissra aðhaldsaðgerða í rekstri sem ætlað sé að bæta EBITDA-framlegð félagsins bæði á yfirstandandi ári og til lengri tíma.
Fram kemur að rekstur fyrstu mánaða ársins 2025 hafi gengið í samræmi við áætlanir stjórnenda. Hins vegar sé félagið háð því að tryggja skammtímafjármögnun og að viðskiptabanki framlengi lánalínur, að minnsta kosti út rekstrarárið. Takist það ekki kunni að skapast vafi um rekstrarhæfi félagsins.

