ÁGÚST: „Ég var ekki með neitt fast í hendi, nema trúna á tónlistina“

Ágúst Þór Brynjarsson er 26 ára tónlistarmaður frá Húsavík sem hefur vakið mikla athygli undanfarin ár. Samhliða öflugum sólóferli hefur hann leikið með bæði Færibandinu og Stuðlabandinu, og á síðasta ári steig hann inn á stóra sviðið þegar hann keppti í Söngvakeppni RÚV með lagið Like You. Ágúst á einnig að baki farsælan feril í knattspyrnu, en hann er uppalinn Völsungur og hefur leikið með ÍR, Þór og Magna. Í sunnudagsviðtali Húsavík.com ræðir Örlygur Hnefill við Ágúst Þór um ferilinn, stórar ákvarðanir og væntanlega plötu sem kemur út á vormánuðum.

„Þegar einar dyr lokast, opnast aðrar“

Það fyrsta sem blaðamaður tók eftir þegar hann kynntist Ágústi Þór er krafturinn í honum. Ágúst er ótrúlega duglegur og vinnusamur tónlistarmaður. Hann fer í verkefnin af fullum krafti og uppsker í samræmi við það.

Þegar Ágúst lítur til baka á upphaf tónlistarferilsins segir hann vilji byrja söguna í janúar 2024. „Þá var ég 24 ára, í fullu starfi hjá Coke, með Færibandinu mínu að spila og að trúbadorast um allar trissur,“ segir Ágúst. „Ég hringdi í yfirmanninn minn og tilkynnti honum að ég væri hættur. Smá galið að hugsa til þess í dag, því ég var ekki með neitt fast í hendi, nema trúna á tónlistina og þau verkefni sem duttu inn.“

Ákvörðunin var tekin af sterku innsæi. „Ég vissi bara að það sem ég ætlaði að gera í lífinu væri að vera tónlistarmaður,“ segir hann. Og örlögin létu ekki á sér standa. „Bara nokkrum dögum síðar var ég kominn í mitt fyrsta gigg með Stuðlabandinu og það varð síðan að einu stóru og löngu verkefni allt árið 2024, með spilamennsku nánast hverja einustu helgi.“

Ágúst segir þessa reynslu hafa styrkt trú sína á að orðatiltækið um dyrnar eigi sannarlega við. „Sá sem fann upp setninguna þegar einar dyr lokast, opnast aðrar hlýtur að hafa lent í einhverju svipuðu. Þetta var eins og örlögin væru að stýra skútunni.“

Ágúst að spila á jólaballi í Heiðarbæ árið 2018. Mynd úr einkasafni.

Söngvakeppnin, sjómennska og plan B

Annað móment sem Ágúst horfir oft til átti sér stað haustið 2024. Þá var hann búinn að spila tæp 50 gigg það ár og var tilbúinn í næsta verkefni. „Ég sendi Hákoni Guðna, meðhöfundi mínum, skilaboð og sagði honum að ég ætlaði í Söngvakeppnina og væri að koma til hans að semja lag.“

Skipulagið var einfalt en strangt: vinna í laginu á kvöldin, skila því innan viku. En dagarnir í Reykjavík voru lausir. „Þá fékk ég þá hugmynd að skrá mig í Slysavarnaskóla sjómanna, sem var nánast við hliðina á stúdíóinu hans Hákons,“ segir Ágúst og brosir. „Ég setti þetta upp sem plan: annaðhvort kæmist ég í Söngvakeppnina  eða þá færi ég á sjó og gerði eitthvað gagn.“

Þótt sjómennska hafi alls ekki verið draumurinn viðurkennir hann að þetta hafi haft áhrif. „Sjómennskan, sem mig langaði alls ekki að fara í, hjálpaði mér í raun að ná markmiðinu. Hún ýtti mér áfram. Mýtan um að þú náir öllu sem þú ætlar þér ef þú leggur nógu mikið á þig, hún á bara ansi vel við.“

„Mig langar bara að hægja aðeins á öllu“

Nýjasta lag Ágústs, Hægðu á þér, markar upphaf nýs kafla. Lagið er fyrsti síngullinn af væntanlegri plötu Hjartað á milljón og fjallar um fjögurra ára son hans.

„Það er svo tryllt að eiga fjögurra ára barn,“ segir hann. „Mér langar bara að hægja aðeins á öllu og fá að eiga hann sem litla strákinn minn aðeins lengur.“

Lagið samdi hann ásamt Hákoni Guðna, og báðir tengja þeir sterkt við viðfangsefnið. „Við eigum báðir unga drengi og höfum upplifað hvað tíminn líður hratt. Textinn kom mjög eðlilega, sagan er svo bókstafleg. Þetta snertir alla sem eiga börn, hvort sem þau eru að taka sín fyrstu skref eða að fá bílpróf. Ég held að maður verði aldrei alveg tilbúinn.“

Plötuumslag nýjustu smáskífu Ágústs, Hægðu á þér, sem kom út í janúar.

Stórt ár fram undan

Árið 2026 lofar að verða stórt í lífi Ágústs Þórs. Fyrsta platan hans, Hjartað á milljón, kemur út sumardaginn fyrsta, 23. apríl, og inniheldur ellefu lög. Annar síngull af plötunni kemur út 27. febrúar, þar sem Ágúst fær Unu Torfa með sér í lið. „Að gefa út mína eigin tónlist hefur alltaf verið markmið mitt,“ segir hann. „Ég er ótrúlega spenntur fyrir komandi ári.“

Í kjölfar útgáfunnar stefnir hann á tónleikaferðalag um allt land, þar á meðal í heimabæinn Húsavík. „Ég stefni á að halda eina af fyrstu tónleikunum heima á Húsavík í maí. Það væri draumur að sjá mitt fólk þar og flytja fyrir ykkur mitt eigið efni.“

Og miðað við ferðalagið hingað til, er fátt sem bendir til annars en að Ágúst Þór sé bara rétt að byrja.

Bræðurnir Ágúst Þór Brynjarsson og Rúnar Þór Brynjarsson keppa í Tónvkvíslinni á Laugum árið 2014. Mynd: Örlygur Hnefill
Ágúst er þríburi, en systkini hans eru Rúnar Þór Brynjarsson og Særún Anna Brynjarsdóttir. Hér eru þau öll saman á árshátíð Borgarhólsskóla árið 2015. Mynd: Örlygur Hnefill.
Ágúst að leika með Magna Grenivík. Mynd: Vefsíða Magna
Ágúst við tökur á tónlistarmyndbandi á Húsavík á ísköldum vetrardegi árið 2025.