Byrjað að rífa hús Garðvíkur í Haukamýri

Hafist var handa við niðurrif á húsnæði Garðvíkur í Haukamýri sem brann í lok síðasta mánaðar. „Við byrjum á því að taka þak og sperrur til að ekki sé hætta af húsinu, en svo verður að meta ástanda steinveggja og þá vitum við hvort þarf að rífa allt húsið, eða hvort hægt er að byggja upp aftur,“ segir Guðmundur Vilhjálmsson eigandi fyrirtækisins.

Eldur kom upp í húsinu þann 28. janúar og varð altjón. Starfsemi fyrirtækisins hélt áfram strax næsta dag og hefur starfsfólm meðal annars verið að bjarga þeim verkfærum og tólum sem hægt var að bjarga, en mikið eyðilagðist í eldinum.