Guðrún Huld Gunnarsdóttir tekur á næstu vikum við starfi verkefnastjóra markaðs- og kynningarmála hjá Eimi. Guðrún er mörgum Húsvíkingum að góðu kunn, enda hefur hún gegnt starfi framkvæmdastjóra Mærudaga undanfarin átta ár og stýrt bæjarhátíðinni frá árinu 2018.
„Ég mun hefja störf 19. febrúar og er að fara að leiða markaðs- og kynningarmál, svo ég mun áfram hafa mikla snertingu við Húsavík í gegnum þetta starf og orkuna í Þingeyjarsýslum,“ segir Guðrún. „Ég er mjög spennt að koma í teymi Eims og vinna í þeim verkefnum sem þar eru í gangi.“
Guðrún mun jafnframt halda áfram störfum sínum við Mærudaga í sumar. „Ég mun halda Mærudaga í ár, ég er með samning út þetta ár og svo sjáum við hvað verður. Skipulagning er þegar komin af stað og ég er mjög spennt fyrir sumrinu,“ segir hún.
Guðrún er með BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti og samfélagsmiðla og stundar nú meistaranám í markaðsfræði. Hún er jafnframt með D-vottun í verkefnastjórnun. Síðast starfaði Guðrún hjá Nova sem rekstrarstjóri á Akureyri. Hún hefur yfir 25 ára reynslu af viðburðarhaldi og á auk þess og rekur listdansskólann Steps Dancecenter, þar sem hún hefur byggt upp faglegt og skapandi starf sem Húsvíkingar hafa fengið að njóta á ýmsum viðburðum þar sem nemendur skólans hafa komið fram hér.
Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, segir mikilvægt að félagið miðli starfi sínu með skýrum og lifandi hætti. Hann bendir á að Kolfinna María hafi leikið lykilhlutverk í að efla sýnileika Eims undanfarin ár og segir félagið afar heppið að fá Guðrúnu Huld til að taka við keflinu, með þá menntun og reynslu sem hún býr yfir á sviði markaðs- og kynningarmála.
Að lokum segir Guðrún Huld tengsl sín við Húsavík skipta miklu máli. „Ég er búin að stýra Mærudögum síðan 2018, svo Húsavík er orðinn mjög stór hluti af mér. Þetta er mikið traust sem mér hefur verið sýnt og mér þykir vænt um allt það góða fólk sem ég hef kynnst á þessum árum,“ segir hún og hvetur Húsvíkinga til að hafa samband með hugmyndir að dagskrá Mærudaga. „Endilega hafið samband ef þið eruð með flottar hugmyndir, við erum alltaf að leita að nýjum og skemmtilegum hlutum til að efla Mærudaga.“

