„Þetta er öflugur hópur og mörg komin út á vinnumarkaðinn nú þegar“

Löng hefð er fyrir því að Framsýn taki á móti skólahópum til fræðslu um atvinnulíf og réttindi ungs fólks, en í síðustu viku tóku þeir Aðalsteinn J. Halldórsson og Aðalsteinn Á. Baldursson, Kúti, á móti öflugum hópi til fræðslu.

„Við fengum útskriftarnema Borgarhólsskóla í heimsókn fyrir helgi. Það er alltaf gaman að fá tíundu bekkinga úr skólunum hér á svæðinu í heimsókn. Við fórum yfir atvinnulífið, réttindi fólks á vinnumarkaði og svo almenna fræðslu um atvinnulífið á Húsavík og í sveitunum hér í kring,“ segir Aðalsteinn Árni. Eftir fyrirlesturinn var boðið upp á spurningakeppni sem nemendurnir kunnu vel að meta.

Kúti segir að þetta sé áberandi kraftmikill árgangur . „Þetta er öflugur hópur og mörg komin út á vinnumarkaðinn nú þegar, til dæmis eru nokkur þeirra að vinna í Nettó. Þau eru bjartsýn á framtíðina á Húsavík og vonandi verður næg atvinna fyrir þau öll í sumar.“

„Ég lærði alveg helling í þessari heimsókn, um laun og skatta og líka hvað ég fæ út úr því að vera í Framsýn, til dæmis ef ég lendi í slysi,“ segir Marta Ýr Pietrzyk, sem vinnur meðfram skóla og á sumrin í Eurovision-safninu og hefur gert síðustu tvö ár.

Vill sjá öflugri fræðslu um réttindi í skólum landsins

„Það vantar því miður töluvert upp á þekkingu þeirra á réttindum sínum og því mikilvægt að þau fái þessa fræðslu á þessum tíma. Þessi fræðsla á að mínu viti að fá meira vægi inn í skólum landsins sem hluti af námsefni. Það skiptir miklu að geta reiknað og skrifað, en það skiptir líka miklu máli að þekkja sín réttindi á vinnumarkaði. Flestir eru á vinnumarkaði stóran hluta ævinnar og þá er eins gott að vita um sín réttindi og kjör og hvað þarf að hafa í huga þegar sótt er um störf. Það vekur alltaf mikla athygli hjá þeim að það séu hér öflug samtök að berjast fyrir þeirra réttindum,“ sagði Kúti að lokum.