Tuttugastaogfimmta vertíð Gentle Giants á Skjálfanda byrjar með látum

Hvalaskoðunarvertíðin fór af stað hjá Gentle Giants nú um mánaðarmótin, en þetta er 25. starfsár fyrirtækisins á Skjálfanda.

Húsavík.com sló á þráðin til Stefáns Guðmundssonar, forstjóra fyrirtækisins. „Frábær byrjun á 25. vertíð okkar hjá Gentle Giants. Sverrir var að finna fyrsta hnúfubak ársins, rétt vestur af höfninni, og Sarah var með háhyrninga austan við Flatey í morgun,“ segir Stefán.

Húsavík.com óskar Gentle Giants til hamingju með afmælið.