Þessa dagana er unnið að undirbúningi lengingar þvergaðs í Húsavíkurhöfn til suðurs. Í samtali við Húsavík.com segir Bergur Elías Ágústsson, rekstrarstjóri Hafna Norðurþings, að nú sé verið að grafa skurð til að undirbúa vinnu við niðursetningu þila.
„Það er verið að grafa skurð í kringum þvergarðinn og út þar sem hann verður lengdur um 50 metra. Það er verið að undirbúa það að slá niður þil og hefja lokaframkvæmdir,“ segir Bergur.
Hann bætir við garðurinn verði allur þiljaður, og þannig verði einnig endurnýjaður eldri hluti hans. Bergur segir að útboðsferli sé á lokametrunum hjá Siglingasviði Vegagerðarinnar og væntir þess að næstu skref fari að skýrast. „Ég hef væntingar til að vinna við þilin geti hafist í haust,“ segir Bergur.
Lenging Þvergarðsins mun hafa sýnileg áhrif á höfnina að sögn Bergs. „Það verður gaman að sjá breytingarnar, því garðurinn verður lengdur 50 metra til suður.“

