Metfjöldi bíla um Vaðlaheiðargöng eftir Völsungsleik á Akureyri

Völsungsstúlkur mættu KA í þriðja og síðasta leik liðanna um sæti í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í blaki á fimmtudaginn síðasta. Mikil stemning hefur verið í kringum liðið í vetur og sést það einna best á tölfræði sem Húsavík.com hefur fengið frá Vaðlaheiðargöngum um umferð um göngin á fimmtudagskvöld að …

Kynna könnun á stöðu verkafólks í Þingeyjarsveit og Norðurþingi á fundi á fimmtudag

Framsýn hefur boðað til fundar í vikunni þar sem farið verður yfir niðurstöður könnunar á stöðu verkafólks í Norðurþingi og Þingeyjarsveit. Á fundinum verða kynntar niðurstöður nýrrar könnunar um stöðu verkafólks í Norðurþingi og Þingeyjarsveit, sem unnin var af Vörðu. Um er að ræða sérvinnslu á svörum félagsmanna Framsýnar …

Unbroken deildin: Inga Björg valin efnilegust og Taylor og Tamara í draumaliðinu

Inga Björg Brynjúlfsdóttir, leikmaður blakdeildar Völsungs, hefur verið valin efnilegasti leikmaður í Unbroken deildar kvenna þessa leiktíðina. Blaksambands Íslands kynnti í liðinni viku draumalið deildarinnar og þá einstaklinga sem sköruðu framúr. Inga Björg hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með Völsungsliðinu í vetur. „Hún hefur staðið sig frábærlega …

Sex framboð í Norðurþingi: „Það kom enginn hlaupandi rétt fyrir lokun“

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Norðurþing rann út á hádegi í gær og liggur nú fyrir hvaða framboð munu bjóða fram í kosningunum í vor. Húsavík.com ræddi við Karl Hreiðarsson, formann yfirkjörstjórnar, sem staðfesti að alls sex listar hafi borist og að allir hafi þeir uppfyllt skilyrði kosningalaga. Listarnir voru …

Undirbúa lengingu á þvergarði í Húsavíkurhöfn um 50 metra til suðurs

Þessa dagana er unnið að undirbúningi lengingar þvergaðs í Húsavíkurhöfn til suðurs. Í samtali við Húsavík.com segir Bergur Elías Ágústsson, rekstrarstjóri Hafna Norðurþings, að nú sé verið að grafa skurð til að undirbúa vinnu við niðursetningu þila. „Það er verið að grafa skurð í kringum þvergarðinn og út þar …