Nú um mánaðarmótin fór af stað fjórði árgangur heilsunuddnema við Framhaldsskólann á Húsavík. Í þetta skiptið hófu tíu konur námið undir handleiðslu Helgu Bjargar Sigurðardóttur heilsunuddara, sem hefur haldið utan um verklega kennslu við brautina. Konurnar koma frá Þórshöfn, Akureyri, Eskifirði og tvær alla leið frá Stykkishólmi og þær ætla að mæta til Húsavíkur aðra hverja helgi núna fram á vorið í námið við FSH. Verklegu annirnar eru fjórar þannig að þegar náminu líkur verða þær sennilega farnar að kalla sig húsvíkinga. Helga Björg sendi okkur meðfylgjandi mynd af sér með hluta af nemendahópnum og aðstoðarkennaranum, hundinum Lúnu.
Fjórði hópur heilsunuddnema við FSH farinn af stað
