„Væri enn ein atlagan að ferðaþjónustu á landsbyggðunum“ segir formaður hafnasjóðs

Boðaðar breytingar á virðisaukaskattsumhverfi skemmtiferðaskipa í hringsiglingum hafa vakið hörð viðbrögð víða um land. Frá og með næsta sumri vilja skattyfirvöld leggja virðisaukaskatt á alla þjónustu og hafnargjöld sem tengjast skemmtiferðaskipum í hringsiglingum við Ísland.

„Þetta væri enn ein atlagan að ferðaþjónustu á landsbyggðunum,“ segir Eiður Pétursson, formaður hafnarnefndar Norðurþings í samtali við Husavik.com.

Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, segir mikla vinnu hafa farið í að endurbyggja traust við útgerðir skemmtiferðaskipa vegna mikilla breytinga á gjaldaumhverfi skemmtiferðaskipa og því mikilvægt að það séu skýrar línu framundan og rammi sem er hægt að vinna eftir mörg ár fram í tíman, ekki nokkra mánuði í senn eins og nú.

„Við erum að bíða eftir nánari svörum frá skattinum og það er verið að skoða hvernig er hægt að finna farsæla lausn á þessu. Réttmætar væntingar hafa skapast gegnum tíðina að tollfrelsið og virðisaukaskattur séu nátengd mál, þannig að tollfrelsið hafi tilhlíðileg áhrif. Við erum í samtali við þingmenn og stjórnsýslu að skoða alla anga þessa máls núna en stöðug óvissa er að valda tjóni,“ segir Sigurður Jökull.

Vara við neikvæðum áhrifum

Á vef Hafnasambands Íslands kemur fram að sambandið varar við áhrifum þeirra margþættu breytinga sem gerðar hafa verið á skattaumhverfi skemmtiferðaskipa á undanförnu. Í umsögn til Alþingis vegna frumvarps til laga í tengslum við fjárlög 2026 segir að stjórnvöld hafi þá boðað eða innleitt þrjár breytingar á skattalegu umhverfi greinarinnar.

Hafnasambandið telur að breytingarnar muni hafa neikvæð áhrif á hafnir landsins, tekjur hins opinbera og ferðaþjónustu almennt. Sérstaklega er bent á að hafnir á landsbyggðinni treysti í ríkum mæli á komur skemmtiferðaskipa, bæði beint og óbeint, þar sem þjónustuaðilar á svæðinu njóta góðs af.

Óvissa fyrir komandi tímabil

Aðilar innan greinarinnar segja að þegar hafi orðið breytingar á bókunum og að skipafélög horfi til annarra áfangastaða. Þá er bent á að Ísland keppi við aðra norðlæga áfangastaði þar sem skattalegt umhverfi sé fyrirsjáanlegra.

Eiður Pétursson segir mikilvægt að stjórnvöld horfi til heildaráhrifa á byggðir landsins. „Við höfum byggt upp öfluga þjónustu í kringum komur skemmtiferðaskipa og það skiptir miklu fyrir atvinnulíf og tekjur sveitarfélaga að stöðugleiki ríki í rekstrarumhverfinu,“ segir hann.

Hafnasamband Íslands vonast til að farsæl niðurstaða náist áður en næsta sumartímabil hefst, enda sé brýnt að tryggja fyrirsjáanleika fyrir bæði hafnir og ferðaþjónustuaðila um land allt.

Skip frá Windstar Cruises úti fyrir Húsavík í ágúst 2025. Ljósmynd: Örlygur Hnefill