Byggðaráð Norðurþings samþykkti í dag að vísa til sveitarstjórnar viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á úrvinnslustöð áls á Bakka við Húsavík. Það er fyrirtækið Transatlantic Aluminium í samstarfi við Almex USA sem stefna að uppbyggingunni og eru þau meðal þeirra fyrirtækja sem tilgreind voru í tillögum starfshóps Forsætisráðuneytisins vegna stöðvunar PCC á Bakka í fyrra.
„Starfsemi Transatlantic Aluminium mundi snúast um vinnslu á innfluttu áli í stangir og barra. Það útheimtir ekki mikla orku en skapar umtalsvert af störfum og afleiddur störfum, einkum störf fyrir iðn- og tæknimenntaða. Þá fylgir starfseminni þónokkur umsvif á höfninni tengt innflutningi á hráefni og útflutningi á vörum fyrirtækisins,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir formaður byggðaráðs Norðurþings í samtali við Húsavík.com.
„Viljayfirlýsing við fyrirtækið verður til umfjöllunar á sveitarstjórnarfundi í næstu viku og snýr fyrst og fremst að því að aðilar ætla að halda áfram að ræða um mögulega framtíð verkefnisins á Bakka. Verkefnið er athyglisvert og mundi á margan hátt falla vel að samfélaginu í Norðurþingi,“ segir Helena Eydís.

