Undanfarnar vikur hefur mátt sjá marga Þingeyinga skarta glæsilegum mottum, en eins og lesendur vita lauk Mottumars nú um áramótin, en það er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum og um leið safnað fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélagsins. Hægt er að styrkja starf Krabbameinsfélagsins hér: www.krabb.is/mottumars
Sex glæsimenni voru tilnefnd í óformlega Mottumarskeppni Húsavík.com og var það Kristinn Jóhann Ásgrímsson verkefnastjóri hjá framkvæmdasviði Norðurþings sem bar sigur úr býtum, en rétt tæp þúsund tóku þátt í að kjósa milli þeirra 6 herramanna sem voru tilnefndir. Húsavík.com óskar honum til hamingju með titilinn og þakkar öllum sem kusu.

