Norðurþing setur sér menntastefnu til ársins 2031

Norðurþing hefur sett sér nýja menntastefnu sem gildir fyrir árin 2026 til 2031. Stefnan leysir af hólmi eldri skólastefnu sveitarfélagsins. Vinna við gerð stefnunnar hófst í byrjun árs 2025 og var það stýrihópur á vegum fjölskylduráðs, með ráðgjöf frá Ásgarði skólaráðgjöf, sem leiddi vinnuna.

Menntastefnan nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í Norðurþingi og er sérstök áhersla lögð á læsi sem hornstein náms, auk sjálfbærnimenntunar, velferðar, persónumiðaðs náms og öflugs samstarfs við foreldra og samfélagið. Þá er kveðið á um heildstæða og þrepaskipta þjónustu í þágu farsældar barna.

Skólamál í Norðurþingi hafa verið mikið í umræðunni síðustu mánuði, bæði eftir að Grunnskóla Raufarhafnar var lokað vegna skorts á starfsfólki og nemendur fluttir í Öxarfjarðarskóla og eins í kjölfar þess að verkefnið Lítil skref til læsis hlaut Íslensku menntaverðlaunin úr hendi forseta Íslands.

Í nýju stefnunni eru sett fram níu meginmarkmið sem munu leiða skólastarf næstu ár. Þar er meðal annars lögð áhersla á snemmtækan og samþættan stuðning, að rödd barna heyrist og að unnið sé í anda Barnasáttmálans og heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Innleiðing fer fram í gegnum innra mat skólanna, þar sem markmið verða rýnd reglulega og umbætur gerðar eftir þörfum.

> Skoða Menntastefnu Norðurþings