Gentle Giants og GPG bjóða bæjarbúum á útgáfutónleika Ágústs í Húsavíkurkirkju

Það verður sannkölluð tónlistarveisla í Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 7. maí þegar Húsvíkingurinn Ágúst Þór Bryjarsson heldur útgáfutónleika á heimavelli og flytur sína fyrstu plötu, Hjartað á milljón, ásamt nokkrum vel völdum lögum. Aðgangur verður ókeypis en það eru fyrirtækin Gentle Giants og GPG sem bjóða bæjarbúum á tónleikana. Mikið hefur …

Gentle Giants: „Telur stjórn hafnasjóðs sig vita betur en Landsréttur og Hæstiréttur?“

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings hafnaði á fundi sínum í gær kröfum þriggja hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavík um endurgreiðslu ofgreiddra farþegagjalda að samanlagðri upphæð rúmlega 128 milljónum króna. Krafa Húsavík Adventures nemur tæplega 9,7 milljónum króna, krafa Norðursiglingar rúmum 90.6 milljónum og Gentle Giants tæpum 27.9 milljóum, en hún er vegna tímabilsins …

Svavar Pálsson ekki meðal umsækjenda um embætti Sýslumanns Íslands

Svavar Pálsson, sýslumaður Norðurlands eystra og settur sýslumaður á Austurlandi, er ekki meðal umsækjenda um nýtt embætti Sýslumanns Íslands sem tekur við þegar öll sýslumannsembætti landsins verða sameinuð í eitt um næstu áramót. Í samtali við Húsavík.com segir Svavar að um persónulega ákvörðun sé að ræða. Athygli vekur að …