Meirihluti myndaður í Norðurþingi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsókn og Óskalisti undirrita málefnasamning

Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsóknarflokkur og Óskalisti hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn Norðurþings, en samkomulagið var í höfn í gærkvöldi og var málefnasamningur hins nýja meirihluta undirritaður rétt í þessu í húsnæði Orkuveitu Húsavíkur að Hrísmóum. Flokkarnir fjórir fara saman með sjö af níu fulltrúum sveitarstjórnar. Samkvæmt …

Styrktu HSN um 16,7 milljónir: „Stuðningur nærsamfélagsins er mikilvægur“ segir Daníel

Aðalfundur Styrktarfélags HSN í Þingeyjarsýslum var haldinn nýverið en þar var farið yfir rekstur félagsins á árinu 2025 auk þess sem stjórn félagsins afhenti stjórnendum HSN gjafabréf fyrir þeim tækjum sem félagið hefur fjármagnað fyrir stofnunina. Alls styrkti sjóðurinn HSN um 16,7 milljónir króna til tækjakaupa árið 2025. Tekjur …

Úthlutuðu 3,5 milljónum úr samfélagssjóði Orkuveitu Húsavíkur

Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkti á 278. fundi sínum að úthluta samtals 3,5 milljónum króna úr samfélagssjóði fyrirtækisins til fjölbreyttra verkefna í Norðurþingi. Styrkirnir renna til íþrótta-, menningar-, samfélags- og heilsueflingarverkefna á Húsavík, Raufarhöfn, Kópaskeri og í Öxarfirði. Hæsta einstaka úthlutunin að þessu sinni var 700 þúsund króna styrkur til …

Rauði Krossinn: Halldór segir viðurkenninguna endurspegla starf margra sjálfboðaliða

Á aðalfundi Rauði krossinn á Íslandi sem fór fram á Grand Hótel Reykjavík fyrr í mánuðinum var Halldór Valdimarsson heiðraður fyrir góð störf í þágu félagsins. Í umsögn um Halldór sagði meðal annars: „Halldór hóf sitt sjálfboðastarf í stjórn hjá Húsavíkurdeild árið 2012 sem síðan varð Þingeyjarsýsludeild, einmitt fyrir …

Steini og Helga stækka Húsavík Öl: „Þarna opnast möguleiki til að halda flotta tónleika og ýmiskonar viðburði“

Hjónin Þorsteinn Snævar Benediktsson og Helga Dagný Einarsdóttir standa nú í stórræðum við stækkun gestastofu brugghússins Húsavík Öl. „Við erum að stækka gestastofuna okkar og útbúa sal sem hentar betur til viðburða og getum nú tekið á móti mun fleiri gestum, stærðin hefur svolítið háð okkur,“ segir Þorsteinn Snævar …

Tónasmiðjan fagnar 20 árum í kvöld: „Fallegt og hugljúft í bland við alvöru rokk og ról“

Tónasmiðjan heldur glæsilega afmælistónleika á Fosshótel Húsavík í kvöld, mánudaginn 25. maí, þar sem fagnað verður tuttugu ára starfsafmæli. Húsavík.com ræddi við Elvar Bragason, forsvarsmann Tónasmiðjunnar, rétt fyrir tónleikana í kvöld. „Stemningin er góð, við erum að fara í rennsli eftir nokkrar mínútur og þetta verður stórkostlegt kvöld. Rokk …